Heimild: Sporting Life
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist vera ánægður ef að Wayne Rooney nær að fara upp í 40 mörk á þessu tímabili.
Rooney hefur verið í miklu stuði á þessu ári en hann skoraði tvívegis gegn AC Milan í gæærkvöldi og er samtals kominn með 30 mörk í öllum keppnum.
Cristiano Ronaldo setti met þegar að hann skoraði 42 mörk með United tímabilið 2007/2008 en Ferguson yrði sáttur ef að Rooney færi í 40.
,,Ég er ánægður með að hann sé kominn í 30. Hann vildi ná því og hann er búinn að því núna," sagði Ferguson.
,,Við eigum níu deildarleiki eftir og vonandi fimm Evrópuleiki þannig að það eru 14 leikir samtals. Ef að hann nær marki að meðaltali í leik þá nær hann þessu (meti Ronaldo). Ég er hins vegar ekki gráðugur, ég yrði ánægður ef að hann færi í 40 mörk."


