Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 11. mars 2010 17:26
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
McLeish segir Benitez að standa í lappirnar
Alex McLeish, stjóri Birmingham, hefur sagt framherjanum Christian Benitez að hætta að vera með leikaraskap í leikjum liðsins.

Benitez lék vel í 2-1 sigri Birmingham á Portsmouth í fyrradag en hann fékk einnig að líta gula spjaldið fyrir leikaraskap í þeim leik.

,,Christian fór auðveldlega niður í fyrrakvöld og dómarinn gerði rétt þegar að hann úrskurðaði að þetta væri dýfa," sagði McLeish.

,,Christian verður að læra á menninguna í boltanum hér og að við viljum ekki svona hluti. Hann verður að standa í lappirnar."

,,Hann þarf að standa í lappirnar núna því að næst þegar að verður brotið á honum er ég viss um að dómarinn segir; 'við höfum séð hann dýfa sér' og spjaldar hann."

,,Vonandi munu dómarar meðhöndla Christian á sanngjarnan hátt en ég mun klárlega tala við hann um þetta."

Slapp
banner
banner
banner