Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 11. mars 2010 18:18
Magnús Már Einarsson
Heimild: Reuters 
Henk Ten Cate hættur með Al Ahli eftir versta dag ferilsins
Hollenska þjálfarinn Henk ten Cate hefur sagt upp störfum hjá Al Ahli í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en hann tók þesas ákvörðun eftir 5-0 tap liðsins gegn Al Sadd í Meistaradeild Asíu.

Ten Cate var á sínum aðstoðarþjálfari Frank Rijkaard hjá Barcelona og aðstoðarmaður Avram Grant hjá Chelsea. Hann tók við Al Ahli í byrjun febrúar eftir að hafa hætt hjá Panathinaikos en dvölin í Sameinuðu arabísku furstadæmunum var ekki löng.

,,Ég skammast mín fyrir það sem gerðist. Ég skammast mín sjálfur og fyrir hönd Al Ahli. Þetta var versti dagurinn á ferli mínum," sagði Ten Cate eftir tapið gegn Al Sadd.

,,Þess vegna tók ég þá ákvörðun eftir leikinn að segja upp. Ákvörðun mín er endanleg. Ég er stoltur maður og ég hata að tapa. Ef að ég tapa þá verð ég að hafa á tilfinningunni að ég hafi gert allt til að koma í veg fyrir það en ef að þú tapar án þess að berjast þá er þetta tilgangslaust."

,,Það sem ég sá í kvöld var ekki gott. Það var engin barátta og leikmenn börðust ekki fyrir hvern annan."

Slapp
banner