KS/Leiftur hefur fengið tvo nýja leikmenn sem munu leika með liðinu í annarri deildinni í sumar.
Varnarmaðurinn Kristján Vilhjálmsson kemur til liðsins á láni frá Víkingi R.
Kristján, sem er 21 árs, þekkir til hjá KS/Leiftri því að hann lék með liðinu síðari hlutann á síðasta tímabili og stóð sig vel.
KS/Leiftur hefur einnig fengið Þorstein Þorvaldsson miðjumann Magna en hann hefur verið fastamaður hjá Grenvíkingum undanfarin ár.
Í tilkynningu frá KS/Leiftri kemur fram að fleiri tíðinda sé að vænta frá félaginu á næstunni en á sunnudag hefur liðið leik í Lengjubikarnum þar sem að andstæðingarnir eru Völsungur.