Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 11. mars 2010 20:55
Hafliði Breiðfjörð
Lengjubikarinn: Jafnt í baráttuleik Vals og Fram
Guðmundur Steinn kom Val yfir í leiknum.
Guðmundur Steinn kom Val yfir í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Hjálmar Þórarinsson jafnaði metin fyrir Fram.
Hjálmar Þórarinsson jafnaði metin fyrir Fram.
Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson
Valur 1-1 Fram
1-0 Guðmundur Steinn Hafsteinsson (’64)
1-1 Hjálmar Þórarinsson (’74)

Valur og Fram gerðu 1-1 jafntefli í Lengjubikar karla í kvöld en mikil harka einkenndi leikinn.

Fyrri hálfleikurinn var mjög óspennandi og einkenndist meira af baráttu milli liðanna þar sem harðar tæklingar flugu sem fóru mismikið í skapið á leikmönnum liðanna.

Valsmenn komust næst því að skora eftir um það bil stundarfjórðung þegar Almarr Ormarsson bjargaði á línu eftir skot Sigurbjörns Hreiðarssonar.

Undir lok hálfleiksins gerðist umdeilt atvik. Arnar Sveinn Geirsson framherji Vals lá óvígur eftir í kjölfar samskipta við Kristján Hauksson miðvörð Fram sem virtist brotlegur.

Leiknir Ágústsson dómari hljóp að brotstaðnum en ákvað að dæma ekki, og stöðva ekki leik þó Arnar Sveinn lægi, og því brunuðu Framarar í sókn Í henni átti Jón Gunnar Eyesteinsson gott skot sem Haraldur Björnsson markvörður Vals varði frábærlega.

Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleiknum og hvorugt lið gerði breytingar í hálfleik en Jón Vilhelm Ákason hafði farið meiddur af velli eftir hálftíma.

Valsmenn virtust kunna veikleika á Fram þegar þeir bláklæddu fá á sig hornspyrnur og oft skall hurð nærri hælum eftir hornspyrnur Valsmanna. Þeir komust yfir eftir rúmlega klukkutíma leik eftir eina slíka, þá skallaði Guðmundur Steinn Hafsteinsson boltann í netið eftir spyrnu Hafþórs Ægis Vilhjálmssonar. Tveimur mínútum síðar skallaði Guðmundur Steinn í þverslá og yfir eftir fyrirgjöf Hafþórs Ægis.

Þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum jöfnuðu Framarar metin. Þar var að verki Hjálmar Þórarinsson sem skoraði með góðu skoti úr teignum eftir samspil við Almarr Ormarsson sem sendi boltann út í teiginn.

Skömmu síðar skapaðist hætta við mark Framara þegar Hannes Þór Halldórsson handlék boltann inni í vítateig eftir sendingu samherja og því dæmd óbein aukaspyrna. Valsmenn vildu í kjölfar spyrnunnnar fá vítaspyrnu þar sem þeir töldu varnarmann Fram hafa handleikið boltann en fengu ekki. Þess í stað komst Rúnar Már Sigurjónsson í dauðafæri eftir þetta en hitti ekki boltann nógu vel og hann rann út í horn.

Valur: Haraldur Björnsson, Stefán Jóhann Eggertsson, Atli Sveinn Þórarinsson, Reynir Leósson, Rúnar Már Sigurjónsson, Sigurbjörn Hreiðarsson (Ellert Eiríksson ’56), Haukur Páll Sigurðsson, Jón Vilhelm Ákason (Guðmundur Steinn Hafsteinsson ’32), Baldur Ingimar Aðalseinsson, Arnar Sveinn Geirsson (Þórir Guðjónsson ’69), Hafþór Ægir Vilhjálmsson.

Fram: Hannes Þór Halldórsson, Daði Guðmundsson, Kristján Hauksson, Jón Guðni Fjóluson, Sam Tillen, Halldór Hermann Jónsson, Jón Gunnar Eysteinsson (Kristinn Ingi Halldórsson ’83), Hlynur Atli Magnússon (Jón Orri Ólafsson ’69), Hjálmar Þórarinsson, Almarr Ormarsson, Ívar Björnssson (Tómas Leifsson ’64).

Gul spjöld: Stefán Jóhann Eggertsson, Valur (’17), Hlynur Atli Magnússon, Fram (’26), Jón Gunnar Eysteinsson, Fram (’76), Baldur Ingimar Aðalsteinsson, Valur (’83)
Slapp
banner
banner