Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 17. apríl 2010 14:34
Hörður Snævar Jónsson
Neville smellti kossi á munninn á Scholes - Mynd
Mynd: Getty Images
Gary Neville fyrirliði Manchester United bauð upp á heldur skrýtna aðferð tl að fagna Paul Scholes eftir að hafa tryggt liðinu sigur gegn Manchester City en Neville smellti kossi á Scholes.

Scholes skoraði markið á lokamínútu leiksins og smellti fyrirliðinn kossi á Scholes.

Það eru fáir sem elska United jafn mikið og Neville og sést það greinilega á myndinni hér til hliðar.

Þessir reyndu leikmenn voru bestu menn liðsins í leiknum.

Scholes sem er 35 ára gamall skrifaði í gær undir nýjan eins árs samning við félagið.

United er með þessum sigri að halda lífi í barátunni um sigur í ensku úrvalsdeildinni.

Chelsea mætir Tottenham á White Hart Lane seinnipartinn í dag og getur með sigri aftur komist í fjögurra stiga forystu.
banner