Guardiola áfram hjá Man City - Man Utd vill fá Goretzka - Davies til Real Madrid?
   fim 06. maí 2010 17:52
Þórður Már Sigfússon
Björn Bergmann aftur á skotskónum fyrir Lilleström
Stefán Logi varði vítaspyrnu
Björn Bergmann Sigurðarson.
Björn Bergmann Sigurðarson.
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Björn Bergmann Sigurðarson skoraði annað mark Lilleström þegar liðið sigraði Start 3-2 á útivelli í norsku úrvalsdeildinni í kvöld eftir að hafa verið 0-2 undir í hálfleik.

Markið sem Björn skoraði kom á 71. mínútu en félagi hans í framlínunni, Arild Sundgot, skoraði hin tvö mörk liðsins.

Þetta var annað mark Björns í tveimur leikjum því hann skoraði eitt mark þegar liðið burstaði Sandefjord 4-0 um síðustu helgi.

Start fékk gullið tækifæri til að komast í 3-0 undir lok fyrri hálfleiks en Stefán Logi Magnússon, sem hafði einungis fengið á sig eitt mark í síðustu átta leikjum, varði vítaspyrnu frá Christian Bolanos.

Með sigrinum í dag skaust Lilleström upp í fjórða sæti deildarinnar.
banner
banner