Heimild: Soccernet
Soccernet birti nú síðdegis frétt þess efnis að Chelsea sé að undirbúa mettilboð í Fernando Torres framherja Liverpool.
Soccernet segir að tilboð Chelsea og laun Torres séu samanlagt upp á 130 milljónir punda.
Chelsea ætlar að að bjóða Liverpool 40 milljónir punda og þrjá leikmenn í skiptum fyrir Torres.
Leikmennirnir sem Liverpool geta valið um að fá í skiptum eru Jose Bosingwa, Nicolas Anelka, Ricardo Carvalho, Deco, Salomon Kalou og Paulo Ferreira.
Torres myndi síðan sjálfur fá tilboð upp á 200 þúsund pund í vikulaun en auk Chelsea þá hefur spænski framherjinn verið orðaður við Manchester City, Barcelona og Real Madrid að undanförnu.