Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 25. maí 2010 21:00
Björn Steinar Brynjólfsson
Leik lokið: Valur vann sinn fyrsta sigur - Enn tapar Grindavík
Auðunn Helgason er kominn inní byrjunarlið að nýju
Auðunn Helgason er kominn inní byrjunarlið að nýju
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grétar Ólafur Hjartarsson er kominn í byrjunarlið Grindvíkinga eftir langa fjarveru vegna meiðsla
Grétar Ólafur Hjartarsson er kominn í byrjunarlið Grindvíkinga eftir langa fjarveru vegna meiðsla
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hér að neðan er bein textalýsing frá leik Grindavíkur og Vals.

Grindavík 1-2 Valur
0-1 Danni König ´57
1-1 Gilles Mbang Ondo ´69
1-2 Jón Vilhelm Ákason ´71

93mín: Þetta er búið hér í Grindavík þar sem að Valsmenn tóku öll þrjú stigin

90mín: Scott Ramsay með svaka skot í stöng og Ray Jónsson sem var nýkominn inná fylgdi eftir en beint á Kjartan Sturluson

80mín: Orri Freyr Hjaltalín var að skalla boltann rétt framhjá

76mín: Það eru skiptingar hjá báðum liðum Óli Baldur Bjarnason kemur inn fyrir Grétar Ólaf Hjartarsson og Baldur Ingimar Aðalsteinsson fór út hjá Val og Matthías Guðmundsson inn í hans stað

73mín: Markið sem Valsmenn skoruðu með skalla var Jón Vilhelm Ákason aleinn á fjærstöng og skallaði boltann í markið

69mínMark: Grindavík var að skora. Gilles Ondo var að skora eftir flotta sendingu frá Grétari Ólafi Hjartarssyni flott afgreiðsla hjá Ondo
En þetta er ekki buið þvi Jón Vilhelm Ákason var að skora með skalla eftir fyrirgjöf frá Sigurbirni Hreiðarssyni.

63mín: Heimamenn virðast ekkert ná að hrifsa af sér slénið eftir markið og eru menn óákveðnir í aðgerðum sínum

58mín Mark: Valsmenn voru að komast yfir Danny König skoraði auðveldlega eftir sofandi hátt í vörn heimamanna

53mín: Ondo átti slakt skot sem hann hefði átt að nýta miklu betur

49mín: Baldur Aðalsteinsson var að fá gult spjald fyrir að tækla Gilles Ondo

46mín: Reynir Leósson er farinn útaf og inn kemur Sigurbjörn Hreiðarsson

46mín: Leikur er hafin að nýju og byrja nú heimamenn með boltann og er með vindinn í bakið

45mín: Það er kominn hálfleikur hér í Grindavík þar sem nánast ekkert hefur gerst

41mín: Alexander var að fá gult spjald hjá Grindavík þar sem Baldur Aðalsteinsson var næstum sloppinn í gegn.

38mín: Rúnar Már Sigurjónsson var sloppinn einn í gegn en hitti ekki markið en boltinn fór í hliðarnetið, hann átti að gera miklu betur

34mín: Það er skipting hjá Grindavík Jósef Kristinn Jósefsson fer útaf hugsanlega meiddur og Alexander Magnússon kemur inn í hans stað

26mín: Danni König átti skot sem fór beint í hendurnar á Rúnari Dór

22mín: Annars er ekkert að gerast hér en um leið og það gerist þá verður það komið inná No Time.

18mín: Valsmenn eru búnir að fá 5 hornspyrnur en ekki náð að nýta þær og er Rúnar Dór Daníelsson búinn að gera vel í þeim hornspyrnum.

15mín: Arnar Sveinn Geirsson er búinn að fá fín hlaup upp kantinn fyrir Valsmenn en ekki náð að nýta þau

10mín: Leikurinn fer rólega af stað, Heimamenn stilla uppí 4-3-3 sem er mjög nýtt fyrir þá þar sem þeir eru búnir að vera stilla upp 5 manna varnarlínu

4mín: Baldur Aðalsteinsson átti fyrstu tilraun á mark heimamenn en skotið var fyrir framan teig en var fastur en fór yfir.

19:15: Leikur er hafin og byrja valsmenn með boltann.

19:11: Jæja þá ganga liðin inná völlinn og er verið að kynna liðsmenn.

19:00: Liðin eru byrjuð að hita upp og er fólk farið að týnast inná völlinn

18:45: Við skulum bara demba okkur í byrjunarliðin og þau eru.
Grindavík : Auðun Helgason, Marko Valdimar Stefánsson, Jóhann Helgason, Matthías Örn Friðriksson, Scott Mckenna Ramsay, Orri Freyr Hjaltalín, Rúnar Dór Daníelsson, Loic Mbang Ondo, Gilles Mbang Ondo, Jósef Kristinn Jósefsson, Grétar Ólafur Hjartarsson.

Valur : Kjartan Sturluson, Stefán Eggertsson, Martin Pedersen, Reynir Leósson, Atli Sveinn Þórarinsson, Greg Ross, Baldur Ingimar Aðalsteinsson, Jón Vilhelm Ákason, Rúnar Már Sigurjónsson, Arnar Sveinn Geirsson, Danni König.

18:37: Það eru engar smá breytingar á liði heimamanna, þar að segja að Óskar Pétursson vermir bekkinn og Rúnar Dór Daníelsson er að spila sinn fyrsta úrvalsdeildar leik. Grétar Ólafur Hjartarsson kemur inn fyrir Óla Baldur Bjarnason og Auðunn Helgason kemur inn fyrir Alexander Magnússon

18:20: Sælir lesendur góðir það er blíðskapar veður hér í kvöld og býst ég við mjög skemmtilegum og góðum leik hér í Grindavík í kvöld þar sem að heimamenn taka á móti spræku liði Vals.
Slapp
banner