Sigursteinn Gíslason, þjálfari Leiknis R., var ánægður eftir 2-0 sigur liðsins gegn Þrótti í fyrstu deild karla í kvöld.
Eftir leikinn í kvöld eru Leiknismenn í öðru sæti deildarinnar með tólf stig, stigi á eftir toppliði ÍR.
,,Ég get ekki kvartað eftir þessa byrjun en ég græt samt ennþá eftir Víkingsleikinn, að hafa ekki fengið stig út úr því. Ég sleppi því ekkert," sagði Sigursteinn við Fótbolta.net eftir leik.
,,Markmiðin eru þau sömu og við erum á réttri leið, það er klárt mál."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
























