Þórarinn Ingi Valdimarsson, leikmaður ÍBV, var ánægður eftir 1-0 sigur liðsins á Fylki í dag.
Þórarinn Ingi skoraði eina mark leiksins með vinstri fótarskoti í síðari hálfleiknum.
,,Þessi vinstri fótur er æðislegur hjá manni, maður ætti að vera búinn að skora fleiri mörk en loksins datt þetta fyrir mann," sagði Þórarinn við Fótbolta.net eftir leik.
ÍBV er núna á toppi deilarinnar með fjórtán stig en önnur lið eiga þó leik til góða.
,,Þetta er bónus. Við erum að spila skemmtilegan fótbolta, njótum þess í botn og höfum gaman af því."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.