Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
   lau 19. júní 2010 00:01
Magnús Valur Böðvarsson
Ejub Purisevic: Þokkalega sáttur við frammistöðuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst ÍH spila vel varnarlega og þeir voru duglegir að koma til baka svo það var mjög gott að skora í restina," sagði Ejub Purisevic þjálfari Víkings Ólafsvík eftir 0-1 sigur á ÍH á Ásvöllum í dag.

„Við vorum að reyna að sækja allan tímann og halda haus og þetta kom í restina."

„Mér fannst við skapa 3-4 færi til að skora og ef við hefðum skorað fyrr þá hefði leikurinn verið auðveldari."

„Ég vissi að við vorum að koma af grasi yfir á gervigras en þeir spiluðu nokkuð agað og skipulagt. Mér fannst við spila vel og við fengum þrjú stig svo ég er þokkalega sáttur við frammistöðuna í dag."


Varamannabekkur Víkings virtist þunnskipaður í kvöld.

„Við lentum í smá meiðslum og það eru líka strákar sem spila með 2. flokknum og svona. En við búum úti á landi, það er aldrei stór hópur."

Ejub ætlar sér að vera í toppbaráttu.

„Já, ég held að við verðum þar. Við spilum vel og ég held að við verðum þar einhversstaðar nálægt. Við erum bara að reyna að fara eins langt og við getum."
Slapp
banner
banner