Heimild: Heimasíða SønderjyskE
Markvörðurinn efnilegi, Arnar Darri Pétursson, hefur skrifað undir tveggja ára samning við danska úrvalsdeildarliðið SønderjyskE. Hann kemur til liðsins á frjálsri sölu frá Lyn þar sem norska 1. deildarliðið var tekið til gjaldþrotaskipta í gær.
Hinn 19 ára gamli Arnar á að baki 19 deildarleiki með Lyn en hann þykir einn efnilegasti markvörður Íslands um þessar mundir.
,,Arnar er hæfileikaríkur markvörður sem við væntum mikils af í framtíðinni,” sagði Klaus Rasmussen, framkvæmdarstjóri SønderjyskE, á heimasíðu félagsins í kjölfar undirskriftar leikmannsins.
Miðjumaðurinn Ólafur Ingi Skúlason er á mála hjá SønderjyskE en auk þess var miðvörðurinn sterki Sölvi Geir Ottesen seldur frá félaginu til FC Kaupmannahafnar fyrir stuttu.
Lyn hefur dregið sig úr keppni í norsku 1. deildinni en liðið var í neðsta sæti deildarinnar þegar tilkynnt var um gjaldþrot félagsins í gær.



