Umfjöllun: Ósanngjarnt jafntefli á Vodafonevellinum
Haukar 1 - 1 Fylkir
0-1 Albert Brynjar Ingason ('50)
1-1 Kristján Ómar Björnsson ('93)
0-1 Albert Brynjar Ingason ('50)
1-1 Kristján Ómar Björnsson ('93)
Haukar tóku á móti Fylkismönnum í kvöld á Vodafonevellinum í leik sem skipti bæði lið gríðarlega miklu máli. Fylkismenn hefðu með sigri getað komist úr botnbaráttunni og inn í baráttuna sem er í gangi um miðja deild. Haukamenn þurfa aftur á móti nauðsynlega á sigri að halda því að eftir 9 leiki í deildinni eru þeir enn án sigurs en þó komnir með fjögur jafntefli.
Leikurinn í kvöld var engin rosaleg skemmtun og liðin náðu ekki í fyrri hálfleik að skapa sér umtalsverð marktækifæri. Það að fyrsta almennilega færið kom ekki fyrr en á 17 mínútu segir kannski alla söguna. Þá var Albert Brynjar á ferðinni og sendi boltann inn í teiginn en Pétur Örn var vel á verði í vörn Hauka og beygði hættunni frá.
Haukar spiluðu þó mun betur en Fylkir í fyrri hálfleik en eins og áður sagði náðu ekki að nýta sér það og það voru Fylkismenn sem áttu hættulegasta færi fyrri hálfleiks. Þeir fengu hornspyrnu og Albert Brynjar náði að smellhitta boltann með höfðinu en Guðjón Lýðsson bjargaði á línu. Síðustu mínútur fyrri hálfleiks náði Fylkir að komast inn í leikinn og náðu undirtökunum.
Enda byrjuðu þeir seinni hálfleikinn af miklum krafti og voru klaufar að skora ekki mark á 47 mínútu þegar þeir komast í sókn, boltinn rúllar fram hjá Amir í marki Hauka en sóknarmenn Fylkis voru ekki á tánum og náðu ekki að skora. Ingimundur Níels var síðan tosaður niður inn í teignum og heimtuðu Fylkismenn vítaspyrnu en Þóroddur Hjaltalín varð ekki við þeirri bón.
En þeir nýttu færið á 50 mínútu þegar Ingimundur Níels átti fína sendingu á Albert Brynjar Ingason sem átti ekki í neinum vandræðum með að setja boltann í netið. Sjöunda mark Alberts í deildinni því staðreynd og er hann því markahæsti maður deildarinnar eins og er allavegana.
Það sem eftir lifði seinni hálfleiksins leit ekkert út fyrir að Fylkismenn myndu láta forystuna af hendi. Þeir spiluðu agaðan fótbolta, voru beittir fram á við án þess þó að skapa sér mörg tækifæri. Haukamenn voru aftur á móti á hælunum í seinni hálfleik, sérstaklega eftir að þeir fengu markið á sig og virtust þeir láta það fara í taugarnar á sér að vera undir.
En hið forkveðna kom svo sannarlega í ljós í kvöld, að leikurinn er ekki búinn fyrr en hann er búinn og þegar allir virtust vera komnir á þá skoðun að leikurinn væri búinn og voru að gera sig klára í það að fara heim að þá breyttist staðan
Því á 93 mínútu fengu Haukar hornspyrnu. Boltinn barst til Kristján Ómars Björnssonar sem náði að koma boltanum í netið og jafna fyrir Hauka. Ótrúlegt alveg hreint og Fylkismenn getað nagað sig illilega í handarbökin fyrir sofandahátt á lokamínútunum.
Fylkismenn áttu sigur skilið í kvöld og Haukar stálu stigi. En fótbolti er ekki alltaf sanngjarn, þess vegna er hann svona skemmtilegur.
Spjöld: Arnar Gunnlaugsson (gult) Gunnar Ásgeirsson (gult) Kristján Ómar Björnsson (gult) Kjartan Ágúst Breiðdal (gult) Kristján Valdimarsson (gult) Jóhann Þórhallson (gult)
Lið Hauka: Amir Mehica, Pétur Örn Gíslason, Kristján Ómar Björnsson, Guðjón Pétur Lýðsson, Úlfar Hrafn Pálsson, Hilmar Rafn Emilsson, Hilmar Geir Eiðsson, Arnar B. Gunnlaugsson, Gunnar Ormslev Ásgeirsson, Ásgeir Þór Ingólfsson, Guðmundur Viðar Mete.
Varamenn: Magnús Þór Gunnarsson, Jónas Bjarnason, Jónmundur Grétarsson, Pétur Ásbjörnsson, Kristján Óli Sigurðsson, Grétar Atli Grétarsson, Stefán Daníel Jónsson.
Lið Fylkis: Fjalar Þorgeirsson, Kristján Valdimarsson, Valur Fannar Gíslason, Ingimundur Níels Óskarsson, Jóhann Þórhallsson, Pape Mamadou Faye, Kjartan Ágúst Breiðdal, Albert Brynjar Ingason, Tómas Þorsteinsson, Einar Pétursson, Andri Þór Jónsson.
Varamenn: Andrew Bazi, Benedikt Óli Breiðdal, Ásgeir Örn Arnþórsson, Andri Már Hermannsson, Friðrik Ingi Þráinsson, Styrmir Erlendsson, Davíð Þór Ásbjörnsson.
Dómari: Þóroddur Hjaltalín (allt í lagi)
Áhorfendur: 580
Maður leiksins: Albert Brynjar Ingason

