Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
   mán 05. júlí 2010 23:00
Matthías Freyr Matthíasson
Andri Marteinsson: Fengum stig sem er óverðskuldað
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Við fengum stig og hlutirnir voru að falla með okkur ef þannig er horft á það. Því við fengum náttúrulega stig sem í sjálfu sér er kannski óverðskuldað að mörgu leiti," sagði Andri Marteinsson þjálfari Hauka eftir 1-1 jafntefli við Fylki í kvöld en jöfnunarmarkið skoruðu Haukar í lokin.

,,Mér fannst Fylkismenn virkilega góðir í dag og hátt tempó í liðinu. Mér fannst þeir mæta okkur mjög framarlega, þeir mættu okkur mjög þétt og gáfu okkur tíma og fengu svo hraðar sóknir."

,,Þarna sá maður Fylkisliðið sem maður þekkir og að ná jafntefli hérna á móti þeim er bara fínt."

,,Þetta er búið að vera nokkrir leikir sem hafa gefið byr undir báða. Þetta snýst ekki um sjálstraust. Þetta snýst um að menn séu klárir í slaginn þegar leikurinn er flautaður á. Við höfum verið það hingað til en mér fannst svolítið vanta upp á það í dag. Strákarnir vita það alveg og þú uppskerð sem þú sáir. Ég held að þeir komi miklu stemmdari í næsta leik sem er útileikur á móti Val en heimaleikur um leið. Þarna græðum við loksins að vera með heimaleikina á útivelli."


Nánar er rætt við Andra í sjónvarpinu að ofan.
Slapp
banner