Selfoss er með tvo Austuríksmenn á reynslu þessa dagana en þetta staðfesti Guðmundur Benediktsson þjálfari Selfoss í samtali við Fótbolta.net.
Þetta eru tveir miðjumenn en annar þeirra heitir Patrick Berger eins og hinn margfrægi knattspyrnumaður sem lék til að mynda með Liverpool.
Berger er 26 ára gamall og lék síðast með Leoben í Austríkki sem er í þriðju efstu deild þar í landi.
,,Þeir komu á föstudaginn en það er ekki kominn nein niðurstaða," sagði Guðmundur í samtali við Fótbolta.net.
,,Þetta eru ágætis fótboltamenn en virka ekki í sínu besta formi sem er skiljanlegt. Við munum skoða þetta á allra næstu dögum."