Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 11. júlí 2010 15:11
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Fiorentina í viðræðum um kaup á Emiliano Insua
Mynd: Getty Images
Roy Hodgson, stjóri Liverpool, hefur staðfest að Fiorentina eigi í viðræðum um kaup á vinstri bakverðinum Emiliano Insua.

Insua kom til Liverpool frá Boca Juniors árið 2007 en þessi 21 árs gamli Argentínumaður gæti nú verið á leið til Ítalíu.

,,Ég er búinn að sjá hann spila síðustu þrjá daga og ég kann vel við hann sem leikmann og persónu," sagði Hodgson.

,,Hins vegar byrjuðu viðræðurnar við Fiorentina áður en ég kom hingað svo ég veit ekki hversu langt þær eru komnar."

,,Ég get ekki sagt til um hvort að Insua verði áfram hjá Liverpool eða ekki því að ég verð að ræða það við félagið."

banner
banner