Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   mán 19. júlí 2010 16:44
Hörður Snævar Jónsson
Viktor Unnar á förum frá Val - Haukar mega ræða við hann
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Unnar Illugason leikmaður Vals mun yfirgefa félagið í þessum félagaskiptaglugga. Þetta staðfesti Gunnlaugur Jónsson þjálfari Vals.

Haukar sem hafa ekki unnið leik í sumar hafa fengið leyfi til að ræð við hann.

Hann hefur ekki fengið mörg tækifæri undir stjórn Gunnlaugs Jónssonar og er því á förum.

,,Við gerum okkur grein fyrir því að hann vill ekki áframhaldandi samning hjá okkur," sagði Gunnlaugur við Fótbolta.net í dag en Viktor verður samningslaus eftir tímabilið.

,,Hann er orðinn óþreyjufullur að fá að spila og við getum ekki lofað honum því í byrjunarliðinu allavegana. Ég held að niðurstaðan verði sú að hann muni fara."

Viktor er 20 ára gamall framherji sem gekk í raðir Vals fyrir síðasta tímabil frá Reading.

Hann hóf meistaraflokksferil sinn árið 2006 er hann lék tíu leiki í Landsbankadeildinni og VISA-bikarnum fyrir Breiðablik.

Viktor glímdi svo við mikið af meiðslum hjá Reading og kom þá aftur heim.
Slapp
banner
banner