Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fös 23. júlí 2010 01:13
Hafliði Breiðfjörð
Umfjöllun: Stórleikur Kristjáns Ara afgreiddi Njarðvíkinga
Kristján Ari fagnar með Trausta Birni Ríkharðssyni fyrirliða ÍR í kvöld.
Kristján Ari fagnar með Trausta Birni Ríkharðssyni fyrirliða ÍR í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frans Elvarsson og Axel Kári Vignisson virða fyrir sér boltann.
Frans Elvarsson og Axel Kári Vignisson virða fyrir sér boltann.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiríkur Viljar Hallgrímsson Kúld og Kristinn Björnsson eigast við.
Eiríkur Viljar Hallgrímsson Kúld og Kristinn Björnsson eigast við.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frans Elvarsson misnotar dauðafærið í upphafi leiks.
Frans Elvarsson misnotar dauðafærið í upphafi leiks.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR 5-1 Njarðvík:
1-0 Kristján Ari Halldórsson ('25)
2-0 Kristján Ari Halldórsson ('29)
3-0 Björn Viðar Ásbjörnsson ('35)
4-0 Björn Viðar Ásbjörnsson ('58)
4-1 Einar Valur Árnason ('63)
5-1 Árni Freyr Guðnason ('67)

Það var heldur betur markaveisla sem boðið var upp á í Breiðholtinu í kvöld þegar ÍR tók á móti Njarðvík í 13. umferð 1. deildar karla en lokatölur urðu 5-1 fyrir ÍR-inga og Kristján Ari Halldórsson átti þátt í fjórum af mörkum heimaliðsins.

ÍR hafði fyrir leikinn verið að dala aðeins og í síðustu fimm leikjum gerði liðið fjögur jafntefli og tapaði einum. Eftir að hafa komist í toppsæti deildarinnar fyrr í sumar var ljóst að sigur var það eina sem gilti fyrir þá til að halda sér áfram í baráttunni á meðal efstu liða.

Njarðvíkinga vantaði öll stigin jafn mikið en þeir eru í mikilli baráttu um að halda sæti sínu í deildinni, sitja næst neðstir með 11 stig en pakkinn niðri er stór eins og uppi svo þeir eiga svosem nægan tíma í að laga málin hjá sér ennþá.

Njarðvíkingar áttu fyrsta færið í leiknum þegar Frans Elvarsson komst í gullið færi til að koma þeim yfir í góðu skotfæri gegn Þorsteini V. Einarssyni markverði ÍR en skaut framhjá markinu.

Ingvar Jónsson markvörður Njarðvíkur mátti hafa sig allan við að verja þrumuskot frá Eiríki Viljari Hallgrímssyni Kúld eftir 20 mínútna leik en Ingvar blakaði boltanum yfir markið og í horn. Fyrir þetta hafði hann tvívegis varið frá ÍR-ingum í góðum færum.

Á 25. mínútu kom Kristján Ari liði ÍR yfir. Axel Kári Vignisson sendi bolta þá inn í teiginn af vinstri kantinum og boltinn sigldi framhjá varnarmönnum Njarðvíkur og Ingvari markmanni, á fjærstöngina þar sem Kristján beið eins og sannur markaskorari og setti boltann í netið.

Engu munaði að Karl Brynjar Björnsson bætti öðru marki við tveimur mínútum síðar þegar hann skallaði að marki eftir hornspyrnu Árna Freys Guðnasonar en Ingvar var aftur vandanum vaxinn og blakaði boltanum yfir markið.

Á 29. mínútu kom hinsvegar annað markið. Árni Freyr sendi þá frábæra sendingu innfyrir vörn ÍR á Kristján Ara sem afgreiddi færið vel einn gegn markverði.

Sex mínútum síðar skoraði Björn Viðar Ásbjörnsson svo þriðja mark ÍR en Kristján Ari skallaði þá innfyrir vörnina á Björn Viðar sem afgreiddi færið vel og staðan orðin 3-0 eins og hún var í hálfleik.

Eftir um klukkutíma leik skoraði Björn Viðar Ásbjörnsson svo fjórða mark ÍR eftir að hafa fengið sendingu innfyrir vörn Njarðvíkur frá Árna Frey en greinilegt var að ÍR-ingar vissu þarna um galla hjá Njarðvíkingum því þeir leituðu stöðugt að þessum sendingum sem skiluðu þeim líka mörkum.

Varnarmaðurinn Einar Valur Árnason minnkaði reyndar muninn fyrir gestina á 64. mínútu með skalla eftir hornspyrnu en sigurinn var þó aldrei í hættu fyrir ÍR-inga.

Þeir bættu bara við og Árni Freyr skoraði fimmta markið þremur mínútum síðar. Kristján Ari kom þá upp hægra megin og lék inn í teiginn þar sem hann sendi þvert á markið, Eiríkur Kúld missti af boltanum, eða lét hann fara, og Árni Freyr kom á fjær og setti hann í markið.

Kristján Ari var eitraður í sendingum sínum, hafði þarna skorað tvö og lagt upp önnur tvö. Hann var duglegur að finna samherja sína í fætur fyrir innan vörn Njarðvíkinganna og með heppni hefði það getað skilað fleiri mörkum, ekki það að fimm mörk sé feykinóg.

Njarðvíkingar virtust hressast meira við þegar leið á leikinn og innkoma varamannana Ísaks Arnar Þórðarsonar, Ólafs Jóns Jónssonar og Ben Ryan Long gerði þá hættulegri og þeir fengu aldeilis færin sem tókst ekki að nýta. Það hættulegasta í lok leiksins þegar boltinn átti að fara inn fyrir marklínuna eftir hraða sókn en á ótrúlegan hátt dansaði boltinn á línunni og markstönginni. Lukkan greinilega í liði með ÍR-ingum þar.

Lokastaðan í leiknum 5-1 fyrir ÍR-inga sem ítrekuðu með því að þeir ætla sér að taka þátt í þessari 4-5 liða baráttu um tvö sæti í efstu deild að ári.

Maður leiksins: Kristján Ari Halldórsson, ÍR
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson, góður
Aðstæður: Þungt yfir og smá úði öðru hvoru en veður annars gott og völlurinn betri en í síðasta leik.

ÍR: Þorsteinn V. Einarsson, Trausti Björn Ríkharðsson, Karl Brynjar Björnsson, Elvar Lúðvík Guðjónsson, Axel Kári Vignisson, Heimir Snær Guðmundsson, Haukur Ólafsson (Guðjón Gunnarsson '76), Árni Freyr Guðnason (Sindri Snær Magnússon '72), Eiríkur Viljar Hallgrímsson Kúld (Tómas Agnarsson '85), Björn Viðar Ásbjörnsson, Kristján Ari Halldórsson.
Varamenn: Ágúst Bjarni Garðarsson (m), Halldór Arnarsson.

Njarðvík: Ingvar Jónsson, Ísleifur Guðmundsson, Andri Fannar Freysson (Ben Ryan Long '70), Árni Þór Ármannsson, Kristinn Björnsson, Gestur Gylfason, Einar Valur Árnason, Frans Elvarsson, Haraldur Axel Einarsson, Kristinn Örn Agnarsson (Ísak Örn Þórðarson '53), Björn Ísberg Björnsson (Ólafur Jón Jónsson '60).
Varamenn: Almar Elí Færseth (m), Jón Þór Elfarsson.
Slapp