Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 23. júlí 2010 18:20
Hannes Daði Haraldsson
Heimild: BBC Sport 
Albert Riera til Olympiakos (staðfest)
Mynd: Getty Images
Spænski kantmaðurinn Albert Riera hefur gegnið til liðs við gríska liðið Olympiakos fyrir 3,3 milljónir punda frá Liverpool. Kaupverðið getur þó hækkað upp í 4,6 milljónir punda ef hann stendur sig vel hjá liðinu.

,,Á tveimur árum hjá Liverpool vann ég enga titla og því ákvað ég að færa mig um set og ganga til liðs við Olympiakos" sagði Riera,

,,Ég er að koma til Olympiakos á frábærum tímum og vona að ég geti hjálpað liðinu að verða eitt af tíu bestu liðum Evrópu."

Riera kom til Liverpool árið 2008 frá Espanyol fyrir 8 milljónir punda en féll í ónáð á Anfield þegar hann gaf það út á síðasta tímabili að liði væri sökkvandi skip undir stjórn fyrrum knattspyrnustjóra liðsins, Rafael Benítez.
banner
banner
banner