Fjórir leikir fóru fram í þriðju deild karla í gærkvöldi. Þróttur Vogum sigrað Afríku 4-1 í B riðli. Hallur Kristján Ásgeirsson, spilandi þjálfari Þróttar, var á skotskónum en hann skoraði sitt tíunda mark í sumar.
Í C riðli gerðu Grundarfjörður og Léttir 4-4 jafntefli í fjörugum leik og þá gerðu Skallagrímur og Augnablik markalaust jafntefli í Borganesi.
Í D riðli endurheimti Dalvík/Reynir toppsætið með 5-1 sigri á Einherja þar sem Ragnar Hauksson skoraði þrennu.
B riðill:
Afríka 1 - 4 Þróttur V.
0-1 Eysteinn Elvarsson ('10)
0-2 Hallur Ásgeirsson ('26)
1-2 Robert Stanislaw Makowski ('38)
1-3 Arnar Smárason ('60)
1-4 Gunnar Helgason ('71)
C riðill:
Grundarfjörður 4 - 4 Léttir
Mörk Grundarfjarðar: Hilmir Hjaltason, Heimir Þór Ásgeirsson, Runólfur Jóhann Kristjánsson 2
Mörk Léttis: Ragnar Másson, Indriði Björn Þórðarson, Orri Rafn Sigurðsson, Viktor Ingi Kristjánsson
Skallagrímur 0 - 0 Augnablik
D riðill:
Dalvík/Reynir 5 - 1 Einherji
1-0 ; Ragnar Hauksson
2-0 ; Markús Darri Jónasson
3-0 ; Ragnar Hauksson
4-0 ; Gunnar Már Magnússon
5-0 ; Ragnar Hauksson
5-1 Markaskorara vantar