ÍBV 1 - 2 Stjarnan
0-1 Kolbrún Stefánsdóttir ('45, sjálfsmark)
0-2 Lindsay Schwartz ('56)
1-2 Antonia Roberta Carelse ('60)
0-1 Kolbrún Stefánsdóttir ('45, sjálfsmark)
0-2 Lindsay Schwartz ('56)
1-2 Antonia Roberta Carelse ('60)
Kvennalið Stjörnunnar komst í bikarúrslitin í fyrsta skiptið síðan árið 1993 þegar þær unnu 2-1 sigur á 1. deildarliði ÍBV í Vestmannaeyjum í undanúrslitum VISA-bikars kvenna í dag.
Stjörnustúlkur komust yfir rétt fyrir leikhlé þegar Kolbrún Stefánsdóttir varð fyrir því óláni að skalla boltann í eigið net eftir að fyrirgjöf barst inn í teiginn. Knötturinn fór yfir markvörðinn í fallegum boga og í marknetið.
Lindsay Schwartz bætti síðan við öðru marki í seinni hálfleiknum. Lindsay, sem var einnig í baráttunni við Kolbrúnu í fyrra markinu, náði til fyrirgjafar og tók boltann í fyrstu snertingu framhjá markverðinum og lagði knöttinn í autt markið.
Eyjastúlkur náðu að klóra í bakkann með þrumuskoti frá Antoniu Robertu Carelse eftir góða sókn þegar klukkutími var liðinn af leiknum. Þær fengu einnig færi til að jafna metin en á móti kemur átti Stjarnan fjölda sláarskota og stangarskota og óðu gestirnir í færum.
Sigurinn var því verðskuldaður og Stjarnan komin í bikarúrslit þar sem þær mæta Íslands-og bikarmeisturum Vals á Laugardalsvellinum.