Útvarpsþátturinn Fótbolti.net sem var á X-inu 977 milli 12:00 og 14:00 í fyrradag er nú kominn á netið þar sem hægt er að hlaða niður mp3 skrá af honum.
Ásgeir Þór Ingólfsson og Úlfar Hrafn Pálsson, leikmenn Hauka, kíktu í heimsókn þar sem að þeir spiluðu meðal annars lag sem þeir sömdu fyrir leik FH og Hauka. Þorsteinn Ingason, fyrirliði Þórs, var í viðtali sem og Brynjar Gauti Guðjónsson fyrirliði Víkings Ó. Ásmundur Haraldsson, sérfræðingur þáttarins, var síðan líka á línunni.
Nú er hægt að hlaða niður MP3 skrá af þætti laugardagsins hér á Fótbolta.net.
Ásgeir Þór Ingólfsson og Úlfar Hrafn Pálsson (Haukar), Þorsteinn Ingason (Þór), Brynjar Gauti Guðjónsson (Víkingur Ó.), Ásmundur Haraldsson (Sérfræðingur)
Smelltu hér til að sækja MP3 skrá af þættinum.




