Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   þri 27. júlí 2010 08:24
Magnús Már Einarsson
1.deild leikm umf: Reiknaði alveg eins með þessu
Kristján Ari Halldórsson og Trausti Björn Ríkharðsson.
Kristján Ari Halldórsson og Trausti Björn Ríkharðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristján Ari Halldórsson átti algjöran stórleik á vinstri kantinum hjá ÍR í 5-1 sigri á Njarðvík síðastliðinn fimmtudag. Kristján Ari skoraði tvö mörk og lagði upp tvö en hann er leikmaður 13.umferðar hér á Fótbolta.net.

Kristján Ari Halldórsson
Aldur: 23 ára
Leikir með ÍR: 82 og 22 mörk
Fyrri félög: HK
Lið á Englandi: Liverpool
Uppháhald knattspyrnumaður: Robbie Fowler var alltaf nr.1 en núna er svo sem enginn einn sérstakur í uppáhaldi. Bara margir góðir
,,Nei ekkert sérstaklega. Við unnum stórt og ég átti mjög góðan leik þannig að ég reiknaði alveg eins með þessu. En þetta er samt rosalega skemmtilegt," saði Kristján aðspurður hvort að útnefningin hafi komið honum á óvart.

Kristján fór á kostum í leiknum og hann segir að þetta sé langbesta frammistaða sín í sumar.

,,Já ætli það sé ekki óhætt að segja það. Ég er svo sem alveg búinn að eiga nokkra þokkalega leiki í sumar en núna gekk þetta allt upp."

,,Það var virkilega gaman að ná inn svona toppleik eftir ekki nógu gott gengi í síðustu leikjum þar sem við erum búnir að vera að tapa stigum."


ÍR náði með sigrinum að komast upp í 23 stig en liðið er í fjórða sæti, tveimur stigum frá öðru sætinu. ÍR var spáð tíunda sæti fyrir tímabilið og gengi liðsins hefur því verið fyrir ofan þær væntingar.

,,Þegar ég lít heilt yfir á þetta þá getur maður svo sem ekki verið annað en sáttur þó að maður horf frekar svekktur á eftir 4-6 stigum úr síðustu leikjum."

,,Við erum einhverjum nokkrum stigum frá toppnum núna og ef við höldum áfram að spila eins og við gerðum í síðasta leik getum við alveg strítt þessum liðum í kringum okkur."

,,Ég geri mér alveg grein fyrir því að það þarf ýmislegt að ganga upp hjá okkur ef við eigum að fara upp en ég hef fulla trú á þessu liði."

,,Við spilum bara okkar bolta, reynum að hafa gaman að þessu og hölum inn eins mikið af stigum og við getum svo skoðum við þetta bara í lok móts."


ÍR lék síðast í efstu deild árið 1998 en Kristján Ari segir að liðið núna sé eitt það besta í mörg ár hjá Breiðhyltingum.

,,Já ég held að það sé ekki á neinn hallað þegar ég segi það. ÍR hefur ekki átt lið svona ofarlega í einhver 10-15 ár held ég og taflan lýgur ekki. Það er bara þannig," sagði Kristján Ari léttur í bragði að lokum.

Fyrri leikmenn umferðar:
Leikmaður 12. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 11. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 10. umferðar: Kristján Finnbogason (Grótta.)
Leikmaður 9. umferðar: Viktor Örn Guðmundsson (Víkingur R.)
Leikmaður 8. umferðar: Muamer Sadikovic (Þróttur)
Leikmaður 7. umferðar: Halldór Arnarsson (ÍR)
Leikmaður 6. umferðar: Aron Jóhannsson (Fjölnir)
Leikmaður 5. umferðar: Halldór Kristinn Halldórsson (Leiknir)
Leikmaður 4. umferðar: Jóhann Helgi Hannesson (Þór)
Leikmaður 3. umferðar: Halldór Arnar Hilmisson (Þróttur)
Leikmaður 2. umferðar: Aron Már Smárason (Fjarðabyggð)
Leikmaður 1. umferðar: Dofri Snorrason (Víkingur R.)
Slapp
banner
banner