Heimild: AFP
Espanyol er að kaupa argentínska kantmanninn Maxi Rodrigeuz frá Liverpool samkvæmt fréttum í spænskum fjölmiðlum í dag.
Þessi 29 ára gamli leikmaður gekk til liðs við Liverpool frá Atletico Madrid í janúar síðastliðnum.
Framtíð hans hefur hins vegar verið í óvissu síðan Roy Hodgson tók við Liverpool á dögunum.
Rodriguez þekkir vel til hjá Espanyol því hann lék með liðinu frá 2002-2005.