Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 28. júlí 2010 13:31
Hörður Snævar Jónsson
Powerade slúðrið: Eiður til Birmingham eða Fulham?
Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Þá er komið að daglegum slúðurpakka sem BBC tekur saman.

Benfica hefur sett 33 milljóna punda verðmiða á David Luiz en Chelsea, Manchester City og Real Madrid vilja fá hann. (Daily Mail)

Talið er að City sé á undan Real Madrid um að fá Luiz. (Daily Mail)

City er að reyna að fá James Milner frá Aston Villa og losa sig við Craig Bellamy, Stephen Ireland og Roque Santa Cruz. (Daily Star)

City eru tilbúnir að selja Santa Cruz til Marseille fyrir minna en helmingin af þeim 18 milljónum punda sem félagið borgaði fyrir hann. (Daily Mirror)

Þó gæti Marseille reynt að fá Emmanuel Adeybaor frá City. (imscouing.com)

Jo gæti verið að fara frá City og hefur Blackburn áhuga á honum. (Daily Mirror)

Chelsea og Manchester United eru að skoða Sami Khedira sem gæti verið að fara til Real Madrid. (imscouting.com)

Raul mun hafna Newcastle og Tottenham og ganga í raðir Schalke. (imscouting.com)

Luke Young leikmaður Aston Villa er skrefi nær því að ganga í raðir Liverpool. (Daily MIrror)

David James mun setjast niður með Celtic um helgina og ræða hugsanleg félagaskipta hans þangað. (Daily Mirror)

Wigan er að reyna að fá Ronnie Stam frá Twente. (Daily Mirror)

Blackpool er að reyna að fá Tom Cleverley frá Manchester United á láni. (Daily Mirror)

Eiður Smári Guðjohnsen gæti farið til Birmingham eða Fulham. (Daily MIrror)

Arsene Wenger stjóri Arsenal vill fá Petr Mertesacker. (Daily Mirror)

Arsenal vill fá Federico Marchetti frá Cagliari. (The Sun)
Slapp
banner
banner
banner