Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 28. júlí 2010 17:04
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: AFP 
Ancelotti fær pening ef hann þarf
Carlo Ancelotti stjóri Chelsea mun fá pening til að eyða hafi hann hug á að styrkja lið sitt.

Ancelotti hefur ekki enn rifið upp veskið í sumar en misst menn eins og Joe Cole, Michael Ballack og Juliano Beletti.

,,Ef Carlo vill fá leikmann eða leikmenn munum við skoða það," sagði Ron Gourlay stjórnarformaður Chelsea.

,,Það verður að vera rétti leikmaðurinn sem passar í hópinn og auðvitað á sangjörnu verði."

,,Ef þetta kemur allt saman þá er það í góðu, við munum styrkja hópinn. Carlo hefur samt lokaorðið."

Slapp
banner