Heimild: Sky
Ron Gourlay stjórnarformaður Chelsea segir útilokað að Didier Drogba muni yfirgefa félagið í sumar, en umboðsmaður framherjans gaf í skyn að hann gæti verið á leið til Manchester City áður en nýtt tímabil hefst.
Chelsea hafa þó verið fljótir að eyða þeim orðrómum og hefur Gourlay nú ítrekað að þessi 32 ára landsliðsmaður Fílabeinsstrandarinnar verði um kyrrt hjá Englandsmeisturunum þetta tímabil.
„Didier verður áfram leikmaður Chelsea, hann er samningsbundinn," sagði Gourlay við Sky Sports.
„Svona orðrómar blossa alltaf upp á þessum tíma ársins. Það er eðlilegt að leikmenn okkar séu í fréttunum. En Didier Drogba verður leikmaður Chelsea á næsta ári."



