Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 19. ágúst 2010 21:36
Björn Steinar Brynjólfsson
Grindavík 3-1 FH (Leik lokið)
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Matthías skoraði í síðasta leik ætli hann skori aftur í kvöld?
Matthías skoraði í síðasta leik ætli hann skori aftur í kvöld?
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Gilles Ondo er búinn að vera iðinn við kolann í síðustu leikjum
Gilles Ondo er búinn að vera iðinn við kolann í síðustu leikjum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík 3 - 1 FH
Atli Viðar Björnsson ´18
Gilles Mbang Ondo ´24
Gilles Mbang Ondo ´90
Óli Baldur Bjarnason ´94

94mín MARKKKKKK!!!!!! Óli Baldur Bjarnason var að koma heimamönnum í 3-1 og leikurinn er búinn vá þvílíkar loka mínútur

90mínMARKKKKKK!!!!!! Grindavík var að skora eitt svakalegasta mark sumarsins og þar var Gilles Mbang Ondo sem að setti hann í vínkilinn

88mín Gilles Ondo var sloppinn einn í gegn en Gunnleifur varði glæsilega í horn sem ekkert varð úr

82mínJósef Kristinn Jósefsson brunaði upp kantinn og gaf inn fyrir vörnina á Óla Baldur sem að var aðeins of seinn í boltann og Gunnleifur Gunnleifsson náði að góma boltann

80mín Síðasta skipting hjá Grindavík Hafþór Ægir Vilhjálmsson fer útaf og inná kemur Óli Baldur Bjarnason

76mínGrétar Ólafur Hjartarsson fer útaf og inn kemur Matthías Örn Friðriksson Leikurinn er mjög daufur og er lítið að gerast hjá báðum liðum

74mínFH gerir skiptingu útaf fer Freyr Bjarnason ásamt Ólafi Pál Snorrasyni og inn koma Gunnar Már Gunnarsson og Gunnar Kristjánsson

68mín Heimamenn áttu að fá vítaspyrnu þar sem að einn FH mannana var að detta og fór með báðar hendurnar í boltann

64mín Heimamenn liggja svolítið aftar og eru FH meira með boltann en eru ekki að ná að skapa sér nein alvuru færi

60mín Einhver liggur niðri en erfitt er að sjá það vegna mikillar sólar á markið sem að FH sækir á

57mínFyrsta skiptinginn Scott Ramsay fer útaf og inná kemur Ray Jónsson hjá Grindavík

56mín Matthías Vilhjálmsson með skalla rétt framhjá

55mín Grétar Hjartarson komst í gegn en Tommy var í bakinu á honum og Grétar skaut boltanum en yfir fór hann

52mín Jóhann Helgason og Pétur Viðarsson skullu saman en þeir harka þetta af sér og halda áfram

46mín Leikur er hafin að nýju og eru það heimamenn sem byrja með boltann

45mín Það er kominn hálfleikur hér í virkilega skemmtilegum leik

43mín Pétur Viðarsson með skot rétt fyrir yfir markið

38mín Lítið að gerast en Heimamenn eru mun líklegri eins og er en FH er ekki lið sem er þekkt að gefast upp

24mínÞað kom löng sending inn fyrir vörn FH og varGilles Ondo sem náði að snúa boltanum sér í hag og slapp einn í gegn og skoraði auðveldlega

24mín MARKKKK Grindavík voru að skora

20mín Grétar Ólafur Hjartarson nálægt því að skora átti skot fyrir utan teig og leit boltinn fyrir að fara inn en rétt framjá

18mín Jóhann Helgason missir boltann á sínum vallarhelmingi Matthías Vilhjálmsson tekur bolta og veður upp tekur skotið en Jóhann Helgason fer fyrir en boltinn dettur fyrir lappirnar á Atla Viðari Björnssyni og hann skorar í autt markið

18mín MARKKKKK FH ingar voru að skora

13mín Atli Viðar Björnsson var galopin inní teig og hann skaut en Óskar pétursson varði glæsilega í í horn sem ekkert varð úr

7mín Flott spil hjá heimamönnum þar sem að Grétar Hjartarsson fékk boltann rétt fyrir utan teig hefði getað skotið honum ákvað að leika á Tommy Nielsen og gaf boltann út á Scott Ramsay sem að þrumaði boltanum í varnarmann fékk boltann aftur og gaf hann fyrir Gilles Ondo skallaði boltann rétt framhjá

Heimamenn mun líflegri í byrjun

1mín Leikur er hafinn

19:05 Komið þið sæl og blessuð og verið velkomin á leik Grindavíkur og Fimleikafélag Hafnarfjarðar þar sem að nýkrýndir bikarmeistarar mæta suður.

Við skulum byrja á byrjunarliðunum Grindavík : Óskar Pétursson, Auðun Helgason, Jóhann Helgason, Scott Ramsay, Orri Freyr Hjaltalín, Ólafur Örn Bjarnason, Gilles Mbang Ondo, Jósef Kristinn Jósefsson, Grétar Ólafur Hjartarson, Alexander Magnússon, Hafþór Ægir Vilhjálmsson.

FH : Gunnleifur Gunnleifsson, Tommy Nielsen, Freyr Bjarnason, Pétur Viðarsson, Björn Daníel Sverrirsson, Matthías Vilhjálmsson, Atli Guðnason, Guðmundur Sævarsson, Atli Viðar Björnsson, Ólafur Páll Snorrason, Hjörtur Logi Valgarðsson,

Slapp
banner