Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   sun 22. ágúst 2010 22:06
Matthías Freyr Matthíasson
Umfjöllun: FH gerði út um Fylki á 4 mínútum í seinni hálfleik
FH-ingar fagna einu af mörkum sínum í kvöld
FH-ingar fagna einu af mörkum sínum í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Gunnar Már átti frábæra innkomu í dag
Gunnar Már átti frábæra innkomu í dag
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Atli Viðar og Valur Fannar
Atli Viðar og Valur Fannar
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH 4 - 2 Fylkir
0-1 Andrés Már Jóhannesson ('28)
0-2 Jóhann Þórhallsson ('31)
1-2 Freyr Bjarnasson ('44)
2-2 Gunnar Már Guðmundsson ('70)
3-2 Atli Viðar Björnsson ('71)
4-2 Atli Viðar Björnsson ('74)

FH tók á móti Fylki í leik í 17 umferð Pepsí deildar karla í knattspyrnu í Hafnarfirði í kvöld. Aðstæður til knattspyrnuiðkunnar í Firðinum í kvöld voru frekar daprar, mikill vindur og rosalega kalt. Bæði lið þurftu nauðsynlega á sigri að halda í kvöld. FH til að halda í við liðin í toppbaráttunni og Fylkir til þess að tryggja stöðu sína í deildinni.

FH byrjuðu leikinn mun betur og voru í raun við völd allan leikinn fyrir utan tveggja mínútna kafla í fyrri hálfleik. Þó náðu þeir ekki að skapa sér nein umtalsverð færi þótt þeir pressuðu stíft. Fylkismenn sóttu sama sem ekkert og lágu aftarlega á vellinum og voru fastir fyrir.

Því var það algjörlega gegn gangi leiksins þegar Tómas Þorsteinsson átti fína sendingu á Andrés Már Jóhannesson á 28 mínútu leikins. Andrés Már átti ekki neinum vandræðum með að skora snyrtilega fram hjá Gunnleifi í markinu. En þetta var fyrsta skot og marktilraun Fylkismanna í leiknum.

Aftur var Tómas Þorsteinsson síðan á ferðinni aðeins þremur mínútum seinna eða á 31 mínútu, þá sendi hann boltann á Jóhann Þórhallsson sem komst einn á móti Gunnleifi og skoraði örugglega. Tvö skot Fylkismanna að marki FH og tvö mörk komin. Frábær nýting þeirra en algjörlega gegn gangi leiksins.

Eftir þetta náðu FH-ingar aftur völdunum á vellinum og það er sagt að það sé stundum nauðsynlegt fyrir lið sem lenda undir að ná að setja mark áður en fyrri hálfleik sé lokið og það ætluðu FH-ingar sér að gera og það tókst á lokamínútu fyrri hálfleiks.

Matthías Vilhjálmsson tók þá aukaspyrnu vinstra meginn utan við vítateig Fylkis. Aukaspyrnan var vel tekinn og Freyr Bjarnason skallaði boltann í mark Fylkis.

FH-ingar byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og fengu hættulegt færi strax á fyrstu mínútu seinni hálfleiks án þess að ná að nýta sér það nógu vel. Þeir héldu áfram að vera sterkara liðið á vellinum og Fylkismenn virtust ekki eiga roð í þá.

En á 69. mínútu leiksins gerði Heimir Guðjónsson þjálfari FH skiptingu. Ásgeir Gunnar Ásgeirsson fór af velli og Gunnar Már Guðmundsson kom inná. Það tók ekki langan tíma fyrir Gunnar Má að stimpla sig inn í leikinn því á 70 mínútu fékk hann sendingu rétt fyrir utan teig, hann tók boltann í fyrstu snertingu og þrumaði í markið. Frábær innkoma.

FH-ingar voru ekki hættir því að aðeins minútu seinna fékk Atli Viðar Björnsson stungusendingu frá miðjum velli inn fyrir vörn Fylkis. Atli Viðar hljóp sem vindurinn að marki Fylkis og átti ekki í neinum vandræðum með að skora.

Þremur mínútum seinna eða á 74 mínútu kom sending inn í vörn FylkisAtli Viðar náði til boltans með því að toga niður varnarmann Fylkis, ekkert dæmt og Atli Viðar því á auðum sjó á móti Fjalari og setti boltann í þaknetið.

Ótrúlegur viðsnúningur hjá FH að ná því að komast í 4 -2 eftir að hafa lent 0 - 2 undir. Eftir þetta gerðist ekkert í leiknum. FH-ingar létu forystuna aldrei af hendi og unnu leikinn öruggt og sanngjarnt. Það er alveg ljóst að FH mun halda áfram að bíta í hælana á efstu liðunum og eru til alls líklegir. Fylkismenn aftur á móti litu illa út í dag ef frá eru teknar þrjár mínútur í fyrri hálfleik og eru komnir í ansi slæm mál.

Spjöld: Þórir Hannesson (gult) Andrés Már Jóhannesson (gult) Björn Daníel Sverrisson (gult) Ólafur Páll Snorrason (gult)

FH: Gunnleifur Gunnleifsson, Tommy Nielsen, Freyr Bjarnason, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, Pétur Viðarsson, Björn Daníel Sverrisson, Matthías Vilhjálmsson, Atli Guðnason, Atli Viðar Björnsson, Ólafur Páll Snorrason, Hjörtur Logi Valgarðsson.
Varamenn: Gunnar Sigurðsson, Gunnar Már Guðmundsson, Gunnar Kristjánsson, Torger Motland, Helgi Valur Pálsson, Einar Karl Ingvarsson, Aron Freyr Eiríksson.

Fylkir: Fjalar Þorgeirsson, Kristján Valdimarsson, Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Valur Fannar Gíslason, Þórir Hannesson, Andrés Már Jóhannesson, Jóhann Þórhallsson, Kjartan Ágúst Breiðdal, Tómas Þorsteinsson, Ásgeir Örn Arnþórsson, Andri Þór Jónsson
Varamenn: Andrew Bazi, Ólafur Ingi Stígsson, Ingimundur Níels Óskarsson, Pape Faye, Andri Már Hermannsson, Friðrik Ingi Þráinsson, Davíð Þór Ábjörnsson.

Dómari: Kristinn Jakobsson (góður)
Aðstæður: la la.....rok og kalt. 1777 áhorfendur.
Maður leiksins: Atli Viðar Björnsson FH



Slapp
banner
banner