Þá er komið að liðnum ,,Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar kíkjum við á stemninguna hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.
Að þessu sinni er farið stemningin skoðuð hjá Dalvík/Reyni sem hefur leik í úrslitakeppninni í þriðju deild í dag þegar liðið mætir Álftanesi.
Jóhann Hreiðarsson spilandi aðstoðarþjálfari liðsins svaraði nokkrum spurningum.
Eldra efni úr "Hvað er að frétta?"
Að þessu sinni er farið stemningin skoðuð hjá Dalvík/Reyni sem hefur leik í úrslitakeppninni í þriðju deild í dag þegar liðið mætir Álftanesi.
Jóhann Hreiðarsson spilandi aðstoðarþjálfari liðsins svaraði nokkrum spurningum.
Eldra efni úr "Hvað er að frétta?"
Hvernig er stemningin hjá Dalvík/Reyni?
Hún er mjög góð, takk fyrir að spyrja. Leikmenn eru í óða önn að gera sig tilbúna fyrir úrslitakeppnina. Skipstjórinn og Mafíuósinn sjá til þess að allt sé klárt utan vallar til að leikmenn geti einbeitt sér að komandi leikjum. Gamlir hafa leyft ungum að vinna nokkra leiki til að létta spennuna og heyrst hefur að Helgi Indriða sé hættur að reykja.
Er mikill fótboltaáhugi á Dalvík og Árskógsströnd?
Já mjög mikill og hefur alltaf verið þrátt fyrir dapurt gengi á síðustu árum. Brúinn, stuðningsliðið okkar, mætir á alla leiki hvar sem er og hafa ætíð unnið stúkuna, pallana eða brekkuna.
Hvernig hefur samstarfið gengið hjá félögunum?
Mjög vel, menn og konur eru samstíga og vinna sína vinnu af æðruleysi. Skipstjórinn (Garðar Níelsson:Hvalaskoðun og sjóstangveiði - Níels Jónsson Hauganesi - Sími 8670000 ... Lítið á www.arskogsstrond.is) vinnur ómetanlegt starf fyrir D/R og sér til þess að öllum líði vel.
Er ekki spenna í hópnum fyrir komandi leiki gegn Álftanesi í úrslitakeppninni?
Jú gríðarleg enda hefur Dalvík-Reynir ekki komist í úrslitakeppni síðan liðið féll um árið. Leikmenn eru fullir tilhlökkunar með að mæta sterku liði Álftnesinga sem hafa reynslu af þessari keppni og eru með hörku lið. Leikmenn D/R eru þó ekkert á þeim buxunum að sleppa sér í spennu heldur mun Útsvarið (Steini Sím) halda okkur rólegum með þægilegum spurningaleik svona rétt fyrir átökin til að létta á mannskapnum.
Eftir gott gengi í sumar er stefnan þá ekki sett upp í 2.deild?
Eftir að ungir komu með þau markmið að halda sér í deildinni hefur verið erfitt að setja einhver sérstök markmið. Mestur tími hefur farið í það að útskýra fyrir ungum að það sé ekki hægt að falla úr þriðju deild. Menn (ef menn skal kalla) eru þó byrjaðir að skilja deildarfyrirkomulag á Íslandi og er markmið liðsins klárlega að vinna alla leiki sem eftir eru.
Hvernig er liðið byggt upp?
Að mestu leyti heimamenn eða nærsveitungar en þó er ennþá á huldu hvaðan Sigþór Hafsteinn Baldursson komi. Haukur, okkar John Holmes, á rætur að rekja til Kongó þar sem langalangafi hans var Belgi. Svo má deila um nokkra hvort þeir eru heimamenn eða ekki.
Hvað hefur komið þér á óvart í þriðju deildinni í sumar?
Að ekki þurfi að spila með legghlífar, slakt gengi Afríku, góð dómgæsla og mörk Sigga Sörens fyrir Augnablik. Annað hefur gengið eftir.
Komdu með eina skemmtilega staðreynd um félagið sem fólk veit ekki um?
Fimmtudaginn 5. ágúst horfðu u.þ.b. fimm þúsund manns (fólk á tjaldstæðinu tekið með) á leik D/R og Samherja í 3. deild. Fiskidagurinn mikli hafði örugglega eitthvað með það að gera en annar eins fjöldi hefur ekki sést á leik í 3. deild.

