,,Þetta er sigur á mjög erfiðum útivelli og það telur fínt en það er bara hálfleikur. Það er leikur á þriðjudaginn og það er hans sem skiptir máli," sagði Ragnar Hauksson leikmaður Dalvíkur/Reynis eftir 2-1 sigur liðsins á Álftanesi í úrslitakeppninni í þriðju deildinni í dag.
,,Þetta er klárlega í okkar höndum og undir okkur komið hvort við klárum þetta eða ekki. Það er bara hálfleikur, þetta lítur vel út en við þurfum að klára þetta á þriðjudaginn."
,,Þetta er klárlega í okkar höndum og undir okkur komið hvort við klárum þetta eða ekki. Það er bara hálfleikur, þetta lítur vel út en við þurfum að klára þetta á þriðjudaginn."
Bæði lið fengu góðan stuðning í leiknum í dag og stuðningsmenn Dalvíkur/Reynis létu ekki sitt eftir liggja.
,,Þeir eru flottir. Það virðist vera sama hvert við förum, hvort það er austur á firði eða hvert sem er, þeir fylgja okkur alltaf. Þetta var eitthvað sem gladdi mig mjög þegar ég kom til Dalvíkur."
Ragnar skoraði bæði mörk Dalvíkur/Reynis í dag en hann kom til félagsins frá KS/Leiftri í júlí.
,,Þetta eru flottir strákar en að vísu hundleiðinlegur aðstoðarþjálfari en að öðru leyti frábærir."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























