Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 28. ágúst 2010 22:47
Hörður Snævar Jónsson
Heimild: Heimasíða Liverpool 
Raul Meireles til Liverpool (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur klárað kaup sín á Raul Meireles frá Porto en hann er búinn að skrifa undir samning.

Þessi miðjumaður frá Portúgal skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið frá Bítlaborginni.

Liverpool borgaði 14 milljónir evra fyrir þennan 27 ára gamla leikmann.

Hann á að baki 38 landsleiki fyrir Portúgal og unnið fjóra titla fyrir Porto.

Hann lék alla fjóra leiki Portúgal á HM og þótti standa sig vel.

Hann mun fylla skarp Javier Mascherano sem er á leið til Barcelona.
banner
banner
banner
banner