Heimild: Heimasíða Tottenham
Rafael Van der Vaart er genginn í raðir Tottenham en enska knattspyrnusambandið hefur staðfest félagaskipti hans.
Þessi hollenski landsliðsmaður kemur frá Real Madrid en hann var dottinn úr myndinni hjá Jose Mourinho.
Kaupverðið er 8 milljónir punda sem er ekki hátt fyrir þennan snjalla leikmann.
Hann er 27 ára gamall en hann kom til Real Madrid árið 2007 frá Hamburg.
Hann á 83 landsleiki fyrir Holland og skorað í þeim 16 mörk.
Hann var hluti af hollenska liðinu sem var í öðru sæti á HM í Suður Afríku í sumar.