Fjölmargir norskir fjölmiðlamenn eru komnir til Íslands í tengslum við lansleik þjóðanna á Laugardalsvelli á föstudag.
Bæði VG og Dagbladet nýttu tækifærið og kíktu á æfingu hjá Stjörnunni til að fjalla um fagnaðarlætin frægu hjá liðinu.
Hjá VG er Bjarni Jóhannsson þjálfari Stjörnunnar meðal annars í fróðlegu viðtali á norsku auk þess sem Halldór Orri Björnsson er tekinn tali.
Á vef Dagbladet eru leikmenn Stjörnunnar einnig teknir tali og þar sýna þeir tvö ný fögn sem þeir gætu notað á næstunni.
Smelltu hér til að sjá myndbandið á vef VG
Smelltu hér til að sjá myndbandið á vef Dagbladet

