Heimild: Sky
West Ham hefur fengið Lars Jacobsen frá Blackburn en enska knattspyrnusambandið hefur staðfest félagaskiptin.
Þessi 30 ára gamli leikmaður hefur einnig verið hjá Everton á tíma sínum í Englandi.
West Ham gekk einnig frá kaupum á belgíska markverðinum Ruud Boffin en hann skrifaði undir tveggja ára samning.
Hann kemur frá hollenska liðinu MVV Maastrich.


