Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 02. september 2010 08:23
Magnús Már Einarsson
Jóhann Helgi: Maður vonar að hitaskeiðið sé komið
Jóhann Helgi Hannesson.
Jóhann Helgi Hannesson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þetta eru skemmtilegustu leikirnir að spila yfir sumarið. Síðasti leikur var alveg yndislegur þegar við unnum 2-0. Það vilja allir fá að upplifa það aftur og eiga möguleika að komast upp þannig að þetta verður algjör snilld vonandi. Maður getur labbað um bæinn í vetur með höfuðið hátt ef við vinnum þennan leik," sagði Jóhann Helgi Hannesson framherji Þórs við Fótbolta.net um leik liðsins gegn KA í kvöld.

Þórsarar eiga í harðri baráttu um að komast upp í Pepsi-deildina og þeir komast á toppinn, í bili að minnsta kosti, með sigri í kvöld.

,,Þetta er enn einn úrslitaleikurinn fyrir okkur. Við þurfum að vinna þessa leiki sem eftir eru og vona að hinir misstígi sig," sagði Jóhann en ljóst er að KA-menn munu selja sig dýrt í leiknum í kvöld.

,,Ég held að þeir vilji frekar að okkur mistakist og komist ekki upp en þetta verður stál í stál eins og er yfirleitt í þessum leikjum. Það lið sem vill þetta meira vinnur leikinn og við skulum vona að hausinn verði rétt skrúfaður á og við verðum klárir í þetta."

Jóhann skoraði bæði mörkin þegar Þór sigraði KA 2-0 í fyrri leik liðanna í sumar.

,,Ég er búinn að vera á svolítilli ísöld síðan í þeim leik þannig að maður vonar að hitaskeiðið sé komið og mörkin fari að renna inn aftur."

Mjölnismenn, stuðningsmannahópur Þórs, hefur mætt vel á leiki í sumar og látið í sér heyra. Jóhann býst við að engin breyting verði þar á í kvöld.

,,Við höfum engar áhyggjur af því. Það kemur mér mjög á óvart ef þeir ná ekki að fylla stúkuna. Mjölnismenn ætla að byrja upphitun hálf fjögur og þeir verða örugglega orðnir mjög hressir þegar leikurinn byrjar klukkan sex. Ég býst bara við góðu af þeirra hálfu," sagði Jóhann að lokum.
Slapp