,,Mér fannst við gera meira en nóg til að fá eitthvað út úr þessu. Það má setja dálítið spurningamerki við ákvörðun dómarans í markinu og í markinu sem við skoruðum," sagði John Andrews þjálfari Aftureldingar eftir 1-0 tap liðsins gegn Breiðablik í Pepsi-deild kvenna í kvöld.
,,Ég vil ekki tala um dómgæsluna. Við ættum að tala um frammistöðu Aftureldingar. Breiðablik er mjög gott lið en mér fannst okkar stelpur jafnast á við þær og við hefðum kannski getað skorað mörk."
,,Við ætlum að halda áfram að leggja hart að okkur og gera liðum erfitt fyrir þegar þau koma á Varmá."
,,Engin vill spila gegn þessu liði. Við munum ná í fleiri stig áður en tímabilinu lýkur."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.






















