Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 02. september 2010 06:00
Karitas Þórarinsdóttir
Umfjöllun: Draumurinn rættist í Eyjum
Kvenaboltinn
Eyjastúlkur fagna að hætti húsins.
Eyjastúlkur fagna að hætti húsins.
Mynd: Eyjafréttir.is
Nóg að gera í fögnunum.
Nóg að gera í fögnunum.
Mynd: Guðný Óskarsdóttir
Edda María setti 2 mörk.
Edda María setti 2 mörk.
Mynd: Guðný Óskarsdóttir
Bjargað með andlitinu.
Bjargað með andlitinu.
Mynd: Guðný Óskarsdóttir
Keflavíkur stúlkur mættu til Eyja í gær til að leika seinni leikinn í umspili um Pepsi-deildarsæti.

ÍBV 4 - 1 Keflavík
1-0 Edda María Birgisdóttir ('9)
1-1 Nína Ósk Kristinsdóttir ('18)
2-1 Kristín Erna Sigurlásdóttir ('23)
3-1 Lerato Kgasago ('33)
4-1 Edda María Birgisdóttir ('36)

Fyrri leikurinn fór fram í Keflavík en þá vann ÍBV öruggan 4-0 sigur.

Veðurguðirnir voru ekki í sínu besta skapi í gær, en Kári blés þokkalega vel á leikmenn sem og áhorfendur, en áhorfendur höfðu aldrei verið fleiri á Hásteinsvellinum í sumar.

ÍBV byrjaði með boltann og léku með vindi.

Bæði lið þreifuðu fyrir sér á fyrstu mínútunum enn ekkert markvert kom úr þeim sóknum.

Þó að lítið væri liðið af leiknum tókst Eyjastúlkum að brjóta ísinn, en þá fékk Sara Rós Einarsdóttir sendingu upp hægri kantinn, þar tók hún við boltanum og sendi fyrir á fjærstöngina, þar sem Edda María Birgisdóttir tók við honum og negldi honum upp í þaknetið.

Eftir markið voru Eyjastúlkur meira með boltann og áttu nokkur skot en öll fóru þau framhjá markinu.

Keflavíkur stúlkurnar áttu bitlausar sóknir fram að markinu þeirra, en þá fékk Nína Ósk Kristinsdóttir boltann á fjærstöng, þar stóð hún ein og óvölduð og renndi boltanum fram hjá Nönnu Rut Jónsdóttur markverði ÍBV sem gat lítð gert við þessu marki.

Staðan því jöfn en Keflavíkur stúlkur virtust ekki hafa eldmóðinn til að halda áfram að skora því aðeins 5 mínútum síðar komust Eyjastúlkur aftur yfir með laglegu marki Kristínar Ernu Sigurlásdóttur, sem fékk háa sendingu inn fyrir vörn Keflavíkur og setti boltann í netið.

Leikurinn gékk áfram en nánast bara inn á vallarhelmingi Keflavíkur, þær reyndu skyndisóknir er varnarmenn ÍBV ásamt Nönnu Rut í markinu sáu vel við þeim og bjargaði Nanna Eyjastúlkum vel þegar hún varði í frábæru úthlaupi.

En það voru ekki aðeins leikmenn ÍBV sem voru að stoppa þær því vindurinn var það mikill á annað markið og hann átti stóran þátt í að stoppa sóknir Keflvíkinganna.

Eyjastúlkur voru ekki hættar, eftir þunga sókn tók Hlíf Hauksdóttir hættulega hornspyrnu sem skapaði mikinn darraðardans í teignum, en þá var Lerato Kgasago mætt á svæðið og þrumaði boltanum í markið hjá Örnu Lind Kristinsdóttur markverði Keflvíkinganna sem gat ekkert við þessu skoti gert.

Aðeins 3 mínútum síðar fengu ÍBV stúlkur aftur horn og í þetta skiptir tók Lerato hornið, boltinn lenti fyrir miðjum teignum og skapaði mikið moð en Edda María var réttur maður á réttum stað og skoraði sitt annað mark af stuttu færi.

Í hálfleik var staðan 4-1 og því 8-1 samtals og því þruftu Keflavíkur stúlkur á einhverju kraftaverki að halda ef þær ætluðu að koma sér inn í leikinn.

Seinni hálfleikurinn byrjaði líkt og sá fyrri nema að engin mörk voru skoruð.

Keflavíkur stúlkur komu þó sterkari úr leikhléinu og sóttu talsvert meira því þær voru með vindi.

þær áttu hættulegt skot í slá og yfir og voru baráttu glaðari, en Eyjastúlkur sóttu einnig mikið en ekki var um að ræða beittar sóknir.

Þegar um 8 mínútur voru eftir af leiknum áttu Keflvíkingarnir að fá dæmda víti þar sem boltinn fór í hendina á varnarmanni ÍBV en dómarinn sá ekkert athugavert við það.

Nanna Rut bjargaði svo glæsilega hættulegu skoti sem hún náði að blaka frá markinu þegar lítið var eftir að leiknum.

Þegar 93. mínútur voru liðnar af leiknum blés ágætis dómari leiksins í flautuna og við það brutust út mikil fagnaðarlæti Eyjastúlkna sem geta borðið höfuðið hátt eftir að hafa tryggt sér sæti í Pepsideild kvenna að ári.
Slapp
banner
banner
banner