,,Ég held að þetta verði mjög erfiður leikur, KA - Þór er alltaf mikill barátta," sagði Dean Martin þjálfari KA í samtali við Fótbolta.net en liðið mætir Þór í 1. deild karla í kvöld.
Þór vann fyrri leikinn með tveggja marka sigri og eru við topp deildarinnar á meðan KA siglir lignan sjó.
,,Þetta er stórleikur fyrir Þórsara og við erum að spila fyrir stoltið, reyna að klára þetta tímabil með stæl.
,,Seinni parturinn tímabilinu hefur verið betri hjá okkur. Við erum stabiílli, það hafa komið skrýtin úrslit á þessu tímabili og mikið um einstaklingsmistök. Við erum búnir að laga það núna."
Dean segist ekki hugsa um að skemma fyrir Þór að komast upp í Pepsi deildina.
,,Ég er ekki að spá í það hvað Þór er að gera, auðvitað viljum við vinna Þór en þetta snýst um að ná í þrjú stig. Ég er ekki að hugsa um þetta sem Þór - KA heldur hugsa ég um mína leikmenn og að klára þetta tímabil með fullt hús stig í næstu þremur leikjum."
Leikmenn KA hita upp á heimasvæði sínu við KA heimilið og keyra í leikinn.
,,Þetta snýst um að breyta rútínunni og prófa eitthvað nýtt. Ég prófaði þetta úti fyrir mörgum árum og þetta virkaði vel og ég hef ákveðið að prófa þetta hérna í KA og það hefur virkað ágætlga. Þetta snýst um að vera í KA-heimilinu, í okkar klefa og fá góða stemmningu;" sagði Dean Martin að lokum í samtali við Fótbolta.net.


