Heimild: Sky
Scott Carson markvörður West Brom hefur þurft að draga sig úr enska landsliðinu vegna andláts í fjölskyldunni.
Hann mun því ekki vera í hópnum er liðið mætir Búlgaríu á morgun í undankeppni Em 2012.
Carson hafði vonast til að spila sinn fyrsta landsleik frá því í nóvember árið 2008.
Hann verður hinsvegar að yfirgefa hópinn og snúa til fjölskyldu sinnar.
Ólíklegt er talið að Carson hefði spilað því Joe Hart mun að öllum líkindum standa i búrinu.


