Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 02. september 2010 12:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Powerade slúðrið: Arsenal að fá Japana?
Þá er komið að daglegum slúðurpakka í boði Powerade en þar er búið að taka saman helsta slúðrið í ensku götublöðunum.



Arsenal er á eftir japanska framherjanum Ryo Miyaichi en Ajax hefur einnig áhuga á þessum 17 ára gamla leikmanni. (Daily Mail)

Robbie Keane, framherji Tottenham, hafnaði tilboði um að ganga til liðs við Besiktas á átta milljónir punda. (Daily Mail)

Ian Holloway, stjóri Blackpool, er að reyna að semja við markvörðinn Richard Wright sem er án féalgs. (Daily Mirror)

West Ham mistókst að krækja í Yakubu og Marc Wilson áður en félagaskiptaglugginn lokaði en fjárhagsleg vandræði komu í veg fyrir það. (The Guardian)

Coventry vonast til að semja við Marlon King fyrir lok vikunnar en þessi fyrrum framherji Wigan og Watford var að losna úr fangelsi. (Daily Mail)

West Ham hefur krækt í belgíska markvörðinn Ruud Boffin frá MVV Maastrich þar sem Robert Green er á leið í aðgerð. (Daily Mail)

Javier Mascherano segir að svikin loforð hafi orðið til þess að hann yfirgaf Liverpool og fór til Barcelona. (The Guardian)

Alan Curbbishley er líklegastur til að taka við Aston Villa. (Daily mirror)

Gareth Barry, miðjumaður Manchester City, vill fá vetrarfrí í ensku úrvalsdeildinni til að enska landsliðið leiki ekki aftur eins illa og á HM. (Daily Mirror)

Manchester United hefði getað keypt portúgalska framherjann Bebe á 125 þúsund pund í janúar. Bebe kom til Manchester United á sjö milljónir punda á dögunum. (Daily Mail)

Paul Hart og Phil Brown gætu tekið við Southampton sem er í leit að nýjum knattspyrnustjóra. (Daily Mail)

Martin Petrov, kantmaður Bolton, segir að það sé enginn liðsandi eða traust hjá sínu fyrrum félagi Manchester City. (The Sun)

Alex McLeish, stjóri Birmingham, hefur lent upp á kant við stjórn félagsins út af viðræðum um nýjan samnig. (Daily Mail)

Sol Campbell, varnarmaður Newcastle, segist ekki vera of gamall til að koma aftur inn í enska landsliðið. Campbell, sem er 35 ára, lék síðast landsleik fyrir þremur árum. (Daily Star)

David Weir verður elsti leikmaður undankeppni EM í 52 ár ef hann spilar gegn Litháen á morgun. (Daily Record)

Tony Blair, fyrrum forsætisráðherra, Breta segist hafa beðið Sir Alex Ferguson um ráð þegar samband hans og Gordon Brown var ekki upp á það besta. (The Sun)
Slapp
banner
banner