,,Vonandi spilum við betur en á síðasta ári, við spiluðum ekki vel í fyrra. Ég á von á erfiðum leik en vonandi getum við krækt í þrjú stig," sagði John Arne Riise leikmaður Roma og norska landsliðsins í samtali við Fótbolta.net.
,,Í síðustu undankeppni byrjuðum við ekki vel og því er mjög mikilvægt að vinna fyrsta leik og mæta síðan Portúgal og fá sigur þar líka. Að vinna fyrsta leik er mjög mikilvægt."
Ásamt Íslandi og Noregi eru Portúgal, Danmörk og Kýpur í riðlinum.
,,Líklegust til að fara áfram eru Portúgal og Danmörk en ég held að við getum gert vel og jafnvel að Ísland geti komið á óvart
,,Ef við spilum okkar besta leik getum við unnið alla en við þurfum að spila góðan bolta og eiga góðan dag."
Seinasti leikur Íslands í undankeppni HM var gegn Norðmönnum hérna heima og fór 1-1.
,,Við spilum betur saman heldur en síðast, við spiluðum ekki vel seinast á meðan Ísland lék mjög vel svo þetta leit ekki vel út. Við erum sterkari núna og getum vonandi sannað það á föstudaginn."
Ísland er án Eiðs Smára og John Carew er ekki með Norðmönnum vegna meiðsla.
,,Að sjálfsögðu munum við sakna John Carew en við erum með framherja sem geta skorað mörk. Ísland mun sakna Eiðs Smára en hann hefur ekki æft mikið og er ekki í formi. Ef hann er í formi er hann mjög góður leikmaður og Ísland mun sakna hans á föstudaginn:"
























