Heimild: Sky
Andrea Dossena, varnarmaður Napol, getur ekki beðið eftir að fá að mæta sínu gamla félagi Liverpool.
Liverpool og Napol mætast í Evrópudeildinni 21.október og aftur 4.nóvember.
Dossena náði ekki að slá í gegn hjá Liverpool en hann gekk til liðs við Napoli í janúar síðastliðnum.
,,Ég get ekki beðið eftir að fara til baka og spila á Anfield Road," sagði Dossena.
,,Það fyrsta sem kom upp í huga mér þegar ég heyrði fréttirnar var að ég er að fara aftur á Anfield Road. Það sem kom næst upp í hugann er að loksins get ég sýnt stuðningsmönnum Liverpool hver Dossena er í alvöru."





