Heimild: Sky
Franski framherjinn Jeremie Aliadiere mun ekki leika meira á þessu ári eftir að hann skaddaði krossbönd á æfingu.
Aliadiere yfirgaf Middlesbrough í sumar en hann hefur verið án félags síðan þá.
Hann æfði með West Ham á dögunum og virtist vera að ná að vinna sér inn samning þar en svo fór þó ekki.
,,Það var misskilningur varðandi samninginn," sagði Aliadiere.
,,Ég hélt að að væri búið að samþykkja hann en West Ham sagði að svo væri ekki."

