Heimild: VG
John Arne Riise, vinstri bakvörður Norðmanna, verður ekki með liðinu gegn Portúgal í undankeppni EM annað kvöld.
Riise lenti í samstuði á æfingu í morgun og fékk höfuðhögg.
Riise fékk heilahristing og var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús og ljóst er að hann spilar ekki á morgun.
Riise er fastamaður í liði Norðmanna en hann var í liðinu sem sigraði Íslendinga 2-1 síðastliðið föstudagskvöld.





