Heimild: Sky
Forráðamenn Roma hafa lýst því yfir að varnarmaðurinn Philiippe Mexes sé ekki til sölu.
Þessi 28 ára gamli leikmaður hefur ekki vilja gera nýjan samning við Roma og á dögunum var hann orðaður við AC Milan.
Roma vill hins vegar ekki leyfa Mexes að sleppa og félagið stefnir á að gera nýjan samning við leikmanninn.
,,Við treystum á hann og við höfum mikla trú á honum," sagði Gian Paolo Montali framkvæmdastjóri Roma.
,,Hann á ennþá eitt ár eftir af samningi sínum. Að láta hann framlengja þann samning er forgangsatriði hjá okkur."


