Kvennalið ÍBV vann í gær 1. deild kvenna eftir 3-1 sigur á Þrótti í úrslitaleik. Leikið var í Þorlákshöfn og eftir leik var haldið heim með Herjólfi. Full bryggja af fólki tók á móti stúlkunum þegar Herjólfur lagðist að höfn og lúðrar skipsins voru þeyttir svo undir tók. Í kjölfarið hófst svo flugeldasýning og veisla þeim til heiðurs. Hér að neðan er myndaveisla frá þessu sem Júlíus G. Ingason hjá Eyjafréttum tók.


