Heimild: BBC
Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englendinga, segir að Wayne Rooney muni spila gegn Sviss í undankeppni EM annað kvöld þrátt fyrir fréttir enskra fjölmiðla af framhjáhaldi hans.
News of the World og Sunday Mirror birtu fréttir af framhjáhaldinu í gær og götublöðin í dag eru uppfull af fréttum um það í dag.
,,Hann var mjög góður á æfingu og hann verður í góði lagi," sagði Capello eftir æfingu í dag.
Steven Gerrard, fyrirliði, enska landsliðsins býst líka við að Rooney muni standa sig vel á morgun.
,,Já, það eru mál að trufla hann utan vallar en ég held að það muni ekki stöðva hann í að leika vel."



