Heimild: Goal
Roy Hodgson, nýráðinn knattspyrnustjóri Liverpool, segist ekki geta beðið eftir að ,,skrítnu tímarnir" líði hjá en efnahagsleg framtíð Liverpool félagsins mun að öllum líkindum ráðast í október.
Eigendur félagsins, George Gillett og Tom Hicks reyndu að selja félagið í sumar en verðmiðinn var of hár fyrir mögulega kaupendur. Það er sérstaklega í ljósi þess að félagið skuldar 351,4 milljón punda sem samsvarar 63 milljörðum íslenskra króna.

Roy Hodgson segir óþægilegt að starfa án peninga og var neyddur til að selja leikmenn í sumar án þess að geta keypt mikið af nýjum leikmönnum í staðinn.
,,Félagið er til sölu og enginn veit hvaða stefnu það mun taka þegar nýir eigendur taka við. Ég vona að ástandið breytist þegar félagið finnur nýja eigendur sem eru tilbúnir að fjárfesta í félaginu."
,,Þegar sú staða kemur upp er ég nokkuð viss um að það verði ekki erfitt að vinna titla aftur en eins og staðan er núna þá er ekkert annað hægt að gera heldur en að halda í þá leikmenn sem eru hjá félaginu."
,,Stærðin, hefðin og hæfileiki Liverpool að laða til sín leikmenn gerir það alveg mögulegt að vinna einhverja titla þrátt fyrir að félagið sé að ganga gegnum skrítna tíma."
Talið er líklegt að Royal Bank of Scotland taki yfir félagið í október vegna skulda félagsins gagnvart bankanum.